ingarut.bloggar.is
helgin mín í máli og myndum :DInga Rut Pétursdóttir
ég átti alveg frábæra helgi um helgina :D ég og Einar flugum suður á föstudeginum , að því að mér var boðið í útgáfu party á celtic cross, að því að blaðið Padeia var að koma út, það er blað frá Háskóla Íslands, og ég var beðin um að gera forsíðuna,þig getið séð hana á www.baradstefna2008.hi.is
þannig að við flugum suður, ég fór beint í party til Kötu og svo á celtic með Kötu og Hönnu, það var alveg geðveikt gaman, ég gleymdi myndavélinni þannig að ég stel hérna nokkrum frá Kötu minni úr útgáfupartyinu til að hafa með




já við vorum mikið búnar að kvarta undan því að við ættum engar myndir af okkur saman, þannig að það var vel bætt úr því þetta kvöld, :D
Elva, Aldís, Ásta og co voru líka í borginni, og þær komu til okkar á celtic og Einar og Þór líka, svo tekið smá bæjarröllt á Solon og Apotekið.. en laumaðist kannski heldur snemma heim.. hehehe eftir að fá mér feitann og besta Nonna bita!!
við gistum hjá Kötu í sæta svefnsófanum hennar.. vöknuðum svo öll eldsnemma og spjölluðum þangað til Anna Kristín kom og náði í mig, skelltum okkur á smá útsölu í 17 OMG!! hefði alveg getað verslað meira!! namminamm!
fórum á Hressó í hádeginum og fengum okkur salt og einn öllara, útlanda fílingurinn ;)
skelltum okkur svo upp í öskjuhlíð, þar sem hún var með myndavélina að vopni.. tókum um 100 myndir held ég, fékk nokkrar sendar sýni ykkur smá hér..


svo fórum við Einar í pizzu til Hönnu um kvöldið og stemmdi allt í djamm með Hönnu, Önnu Kristínu, Elvu, Aldísi, Ástu, Kötu og co..
en... við´vorum svo bara í rólegheitum uppá hóteli í staðin, enda flug heim snemma daginn eftir.. kvöddum þó ekki borgina fyrr en við vorum búin að fá okkur Nonna ;)
fórum svo í Brynju þegar við komum heim, og Körfuboltaleik Þór - Keflavík um kvöldið með Sævari..
Júnsa mín kom svo heim um hálf tólf á sunnudagskvöldið - - greyjið var komin með kossageit og fimmtuveikina, var heima á mánudeginum með hana og fór til læknis, svo fór hún til pabba síns aftur í gær svo ég kæmist í vinnu, er að fara að ná í hana núna..
annars var þetta bara ÆÐISLEG helgi!!!
og bara takk allir sem eyddu henni með mér :D
Lennon er fæddur!!Inga Rut Pétursdóttir
já í nótt fæddust þrír litlir yndislegir og rosalega rosalega sætir kettlingar, og mun einn þeirra eiga heima hjá mér og Júníu :D :D veiveiveiiiiiiii....ég var mætt á staðinn alveg þremur mínútum eftir að ég fékk hringinguna frá mjög hamingjusömum litlum frænda ;)
og oooohhhhwwwwwww.. hvað þeir eru sætir, langaði bara að taka hann með mér heim í dag..
en Júnía kemur heim á morgun og þá ætlar hún að velja..
ég tók smá myndir - - að sjálfsögðu ;)

held að þetta verði Lennon minn ;)
annars er fátt að frétta, er hérna út á strönd er að fara á sjó í nótt á grásleppu með pabba, það verður örugglega fínt, fyrir utan að vakna klukkan fjögur.. ætluðum að fara á fimmtudaginn en það var svo brjálað veður, Júnía er hjá pabba sínum, en kemur til mín á morgun, ég og Elva fórum á kaffihús í gær, og það var rosa fínt, bara rólegheit fórum reyndar í party á eftir en ég var samt komin heim klukkan eitt.. dugleg stelpa :D
hver veit nema ég taka myndavélina á sjóinn og leyfi ykkur að sjá grásleppukellinguna in action ;) heheheh
jæja hef ekkert að segja.. gleðilega páska öll sömul og hugsið endilega fallega til mín í kuldanum á sjónum.. ;)
tyatya
ofur mömmurnar!Inga Rut Pétursdóttir
já ég og Elva tókum ofur mömmurnar á þetta um helgina,skelltum okkur á laugardeginum í kjarnaskóg með krakkana, held við höfum ekkert skemmt okkur minna, bjuggum til snujókarla og ketti, týndum greinar og köngla, krakkarnir gerðu engla, og við rendum okkur og róluðum.. alveg rosalega gaman.. buðum svo þreyttu greyjunum okkar uppá brynju ís, sem verður alltaf að fylgja í kjölfarið á svona góðum degi..
á sunnudeginum, fórum við með krakkana í bíó á "underdog" fyrsta bíóferðin hennar Júníu og hún var svo spennt að hún var að springa.. rosa gaman samt, fengum okkur svo kaffi og tókum rúnt, fórum uppí fjall og skoðuðum nýju hverfin á akureyri sem shit! spretta upp eins og gorkúlur!
annars var þetta bara ljómandi góð helgi, fyrir utna kannski kvöldin- - aðalega vegna lélegs sjónvarpsefnis.. hefði verið fínt að hafa "einhvern" hjá sér, sérstaklega þegar ég horfði ein á draugamyndina.. ég var næstum því búin að vekja júníu til að fá hana með mér að pissa að því ég þorði ekki ein.. hetjan ég!
en annars er mjööög skemmtilegir tímar framundan! Sigurlaug er að koma heim frá Danmörku!! :D Hanna lína og Kata að koma heim að sunnan.. og einn að koma heim á morgun ;) hehehe svo eru páskarnir að sigla í garð, og ég mun eyða reyndar stórum parti af þeim á sjó! annars bara allt að gerast
langar að henda inn nokkrum myndum af kjarnaferðinni okkar..
takk fyrir að vera dugleg að commenta :D

rosa spenningur








rosa stuð..
Inga Rut P.
...Inga Rut Pétursdóttir
í gær tilkynnti dóttir mín mér - - að ég væri að verða amma...ég fann hvernig ellin heltist yfir mig, þangað til ég áttaði mig á því að hún er bara 4 ára þannig að ég vona að það séu nokkur ár í það ennþá..
en ég hló og spurði hana af hverju ég væri að verða amma þá svaraði hún; þú nennir ekki að eignast barn, þá ætla ég bara að gera það!
hún er nefnilega búin að biðja mig um lítið barn á hverju kvöldi síðust vikur og mánuði, lítið barn og kettling...
henni finnst greinilega vera dálitið tómlegt hérna hjá okkur bara tvær í búinu, hún meira segja bað mig um aðra mömmu um daginn, það fékk dáltið á mig og ég hélt hún vildi bara skipta mér út, en það var nú ekki þannig, heldur vildi hún eiga tvær mömmur hérna heima, hún var búin að finna nafn á hana og allt, hún á að heita Jasbera - - já JASBERA!
held nú samt þrátt fyrir mikinn þrýsting að ég láti það vera að gefa henni lítið systkyni strax, og örugglega læt ég það vera að fara í samband með konu að nafni Jasbera, að því að jú ég hef eiginlega meiri áhuga á hinu kyninu.. alla vega efast ég um að kallinn minn yrði sáttur við það..
en hugsa samt að ég bæti aðeins í fjölskylduna okkar, að því að Aska kisinn hennar Karenar og bróa og co er með kettlinga í maganum :D og hún karen er svo góð að leyfa okkur að fá einn :D víííí
en annars er fátt að frétta, eða ruglið í mér, nei reyndar er alveg fullt að frétta! en ég eiginlega nenni ekki að segja frá því hér..
já lífið bara gengur sinn vana gang, og voanndi gerir það það áfram :D
ætla að enda þetta á einni setningu sem mér finnst alveg frábær, og er búin að óma í hausnum á mér í nokkra daga --
-lifðu eins og þú munir deyja á morgun
lærðu eins og þú munir lifa að eilífu-
lærðu eins og þú munir lifa að eilífu-
já nýtt blogg..Inga Rut Pétursdóttir
síðustu tvær vikur eru búnar að vera skrítnar - - eiginlega vægast sagt skrítnar og dáltið erfiðar..mánudaginn í síðustu viku var Júnía lasin
þriðjudaginn stakk ég hníf í kaf á lærið á mér
miðvikudaginn, snérist í ég hring á veginum og dúndraði út af ofan í holu og upp á kant á leiðinni í vinuna.. engin af þremur bílunum fyrir aftan mig stoppaði og hjálpaði! helvítis.. þurfti að redda því sjálf - - sem ég og gerði!
fimmtudaginn fór ég með Júníu upp á slysó um morguninn
föstudaginn hætti ég með kærastanum
helgin var í meira lagi rólegheit, fór ekki úr náttfötunum eða undan sænginni..
þessi vika byrjaði svo ágætlega fór í vinnu á mánudeginum svo var Júnsa orðin veik þegar ég náði í hana í leikskólann.. hiti, kvef og hálsbólga.. fór svo með hana til læknis á fimmtudaginn eftir algjörlega svefnlausa og grátmikla nótt og hún var komin með eyrnabólgu, vorum svo ennþá heima í dag þangað til pabbi hennar kom og náði í hana, þar sem það er komin pabba helgi..
þannig að ég var inni alla vikuna, með ekkert net, bara stöð eitt og stundum ekki einu sinni dagblöðin vegna veðurs..
en núna er ég komin út á strönd í samband við umheiminn - - kaldhæðnislegt að maður þurfi að fara út í sveit til að ná sambandi við fólk.. en hingað er ég komin til að fara að vinna í fyrramálið..
stefnir allt í ágætis´kvöld annað kvöld, er að fara í afmæli til Aldísar - þar er rautt og svart þema og "hide your eyes" það er eitthvað fyrir mig, þema party :D
annars hef ég lítið annað að segja.. ekki margt að frétta eða margt á daga mína drifið..
vona bara að þið eigið góða helgi öll sömul :D
Inga Rut
lofaði víst bloggiInga Rut Pétursdóttir
já lofaði víst að blogga um helgina..er svo að deyja úr þreytu.. búin að vinna svo mikið þessa viku, tók meira að segja níu bala í dag fyrir þá sem vita hvað það er hehheh ;)
annars er vinna klukkan sex í fyrramálið aftur til að vera búin snemma.. að því að borgarnes kallar hátt á mig, og ferðinni er heitið þangað eftir vinnu.. það er að segja ef veðrið leyfir mér að fara - - fingers crossed!! xxx
en alla vega veit nú ekkert hvað ég á að vera að blaðra um hérna, þar sem fátt hefur á daga mína drifið.. nema vinna, afmælið hennar júnsu, heimsókn að sunnan, kynning á kallinum fyrir mútti og spilakvöld með Elvu og Kötu, eins og sést á commentunum á hinni færslunni voru þær líka kynntar hehe :D annars hefur verið lítið um djamm.. fengum okkur í glas á spilakvöldinu, annars hef ég ekki djammað síðan á jólahlaðborðinu sem var í byrjun des. og ótrúlegt en satt - - sakna ég þess ekki neitt!
elska lífið þessa dagana - vildi bara stundum að ísland væri aðeins minna!
en svona er lífið og spurning um að vinna úr því sem maður hefur.. ekki getur maður kvartað miðað við marga aðra!
er í heljarinnar átaki þessa dagana, ekkert brauð, gos, nammi, flögur, rautt kjöt og rjómi, hálftíma æfingarprógram eftir vinnu og kellan ætlar að missa 5-10 kíló og verða fitt og flott fyrir costa del sol í júní.. hver veit nema maður skelli sér bara í bikiní sem ég hef aldrei á ævinni gert, hef ekki einu sinni farið í sundföt í 7 ár´síðan ég var sextán.. það er stefnan.. að hafa kjark í það :D
en annars hef ég ekkert meira að segja, þannig að ég ætla ða skella inn myndum úr afmælinu og bjóða bara góða helgi - - og endilega krossiði fingur fyrir mig með veðrið og góða fer ;)






Inga Rut :D
14 JanúarInga Rut Pétursdóttir

Elsku litla bestasta besta prinsessan mín á afmæli í dag!
4 ára í dag þessi elska :D :D :D
hef ekki tíma í meira, blogga og skelli inn myndum úr veislunni og fleira um helgina - - lofa því ;)
Inga Rut stoltasta mamma í heimi
árið 2007Inga Rut Pétursdóttir

Frétt ársins:
í heimsfréttunum þetta árið finnst mér standa uppúr, morðið á Benazir Bhutto og hvarfið á Madelain McCann sem er ekki ennþa´fundin...
í innanlandsfréttum mig langar ekki að vera eitthvað hápólitísk og nefna REI málið og fall sjálfstæðisflikksins og myndun nýs meirihluta í borginni, þannig að ég sleppi því bara, frétt ársins innanlands sem snerti mig einna mest er friðarsúla "Yoko Ono" eða Johns Lennon vinar míns, og heimsókn Yoko, Ringo og Sean lennons sem var eins og John endurfæddur, alla vega komu tár þegar ég horfði á beina útsendingu þegar IMAGINE byrjaði að hljóma og ljósin kveiknuðu á súlunni..
og bruninn í Stærra Árskógji hjá Gugga og Ingu
af mínum fréttum er það örugglega að maður er nánast bara gengin út ;)
Klúður ársins:
í heimsfréttum er örugglega árásin á virgina tech háskólann í bandaríkjunum, þar sem 30 nemendur létust, það er klúður vegna þess að það hefði verið hægt að koma í veg fyrir hana á fleiri hátt en einn..
í innanlandsfréttum var þegar stjórnvöld tóku þá heimskulegu ákvörðun að skerða niður aflaheimildir á fiskveiðiárinu um 33 % TAKK
og ég verð að nefna Lukas! hvað var það minningarathöfn um hund út um allt land sem var ekki einu sinni dáinn... sá eini í ár sem hefur dáið og risið upp frá dauðum!
af mínum fréttum er klúðrið mitt - - jahh ætli ég hafi það ekki bara fyrir mig þetta árið ;)
svo er hérna nokkur atriði sem eiga bara við mig, mín skoðun og mitt líf..
Hetja ársins Jóhann Valdimar Kjartansson er maður ársins og hetja ársins míns, hann háði erfiða og hetjulega baráttu við bráða hvítblæði og þurfti að lúta í lægra haldi fyrir sjúkdómnum 27 nóvember síðast liðin
ferðalag ársins er án efa Írlandsferðin mín góða! annars ferðaðist ég mjög mikið á árinu, fór einar sex ferðir til Ólafsvíkur, þrjár til Reykjavíkur, tvær til borgarnes og eina til Grímseyjar.. á margar góðar minningar frá öllum þessum ferðum.. :D
gjöf ársins er sólarlandaferðin sem ég fékk í jólagjöf, demantshálsmenið mitt og dildóinn sem ég fékk í afmælisgjöf frá Elvu, Hönnu og Kötu elskunum mínum ;)
party ársins er örugglega ytrivíkur ofurhetjuþema afmælispartyið mitt í ágúst! það var alveg æðislegt!!
flutningar ársins voru tveir þetta árið, flutti úr öldugötunni heim til mömmu og pabba í febrúar og síðan í október til Akureyrar í keilusíðuna með Júnsu minni og líður okkur alveg frábærlega þar
vinkona ársins verð að segja Elva Ýr eftir skemmtilegt ár og mikla hjálp og allan pakkan, hún er algjörlega búin að redda árinu mínu að öllum öðrum yndilegur vinkonum ólöstuðum ;)
tónleikar ársins Josh Groban í Reykjavík voru alveg to die for! og Mugison & Pétur Ben á græna hattinum á akueyri, enþá með gæsahúð og fíla þá báða í ræmur
annars er þetta hálflélegur annáll.. var búin að hugsa hann mikið mikið betri í hausnum á mér.. en mig langar til að óska ykkur öllum vinum, ættingjum, kunningjum og öllum öðrum gleðilegs árs og farsældar á nýju ári, TAKK fyrir allt gamallt og gott, bæði þið sem ég er búin að hafa mikil samskipti við allt árið og aðrir sem ég bæði kynntist og endurkynntist á þessu ári :D þið eruð öll yndisleg!
gleðilegt át frá okkur mæðgunum!
jólin komaInga Rut Pétursdóttir
jæja núna eru jólin bara rétt að skríða inn um dyragættina..alla vega hjá mér, þar sem ég fæ "jólagjöfina mína" dáltið snemma í ár.. :D
eins og flestir fuglar, og þar á meðal furðufuglar eins og ég sjálf, ætla ég að fljúga suður á bógjinn.. brottför á morgun..
þar sem Júnsa mín fer til pabba síns á morgun og síðustur dagar fyrir jól eru svo rosalega fjölskyldu, happy pappy dagar, þá ætla ég ekki að velta mér upp úr volæðinu og endurtaka leikinn frá því fyrra þar sem maður sat í bílnum eða gekk um göturnar og nánast kúgaðist yfir því hvað allir voru hamingjusamir að leiðast og kyssast ojj barasta.. og þá var ég nú samt með erfingjann meðferðis..
en núna ætla ég að taka mig til og vera þessi ojj barasta týpa fyrir þessi jól sunnan heiða :D
en örvæntið ekki vinir mínir, ég gleymi ykkur ekkert og kem askvaðandi inn um dyrnar hjá ykkur klifjuð af pökkum á aðfangadag, með kossum og knúsum..
ahhhh - - jólin!
annars gengur allur undirbúningur bara alveg ágætlega ´þótt alltaf poppi upp svona eitt og eitt sem gleymist, en eftir daginn í dag, verður sá póll tekinn í hæðina, að ef það gleymist þá gleymist það bara, redda því eftir jól.. who gives - -!?
tók mig til og pakkaði inn öllum 14 gjöfunum í gær, áttaði mig svo á því þar sem ég sat með á gólfinu, með einn jólabjór í hönd (ekki pöddubjórinn hans stefáns frænda heldur hinn) og bráðavaktina í öðru auga, búin að pakka inn öllum gjöfunum, setja á þá sæta borða og allt, að ég gleymdi að merkja þá!!! þannig að ef einhver vinkonan fær latabæjarbók eða peysu í stærð 98. þá megið þið koma henni til mín, og ég skal redda því ;) hehe held reyndar að það hafi reddast þar sem enginn fær eins og pakkarnir eins misjafnir og þeir eru margir :D
en núna er bara stefnan tekin í útskriftarveislu til Jóku minnar, sem var að útskrifast sem sagt, á þessum mjög heppilega tíma! ;) heheh til hamingju með það gullið mitt! :*
en annars er ég búin að vera að fá fregnir af því að margir geti ekki lesið bloggið mitt, þar á meðal Elva og stundum Kata :( sja´myndina af mér en ekki textann.. uss þvílíkur missir ;) hehehe
en þið megið alveg endilega láta mig vita ef þið getið skoðað þetta.. annars þarf ég að skipta aftur, og er ekki að nenna því.. eða bara að hætta þessu alfarið!
annars vil ég líka biðjast afsökunnar á litlu bloggi og ennþa´minna commenti á aðrar síður, þar sem ég er ekki með netið heima í bænum, og það er bilað heima hjá mömmu og pabba og mjög slitrótt á skrifstofunni, hvernig lifi ég.. usss...
en annars langar mig að óska ykkur öllum gleðilegra jóla og takk fyrir allt síðasta ár öll sömul, besta árið mitt held ég.. bara ever..og það er ykkur öllum að þakka :D
og já soooorrrrryyy... það verða bara jólakossar í ár! jólakortin fóru á "bítterinn" listann þetta árið, eins og átta tegundirnar af smákökum, piparkökuhúsið og allt hitt! hehehe
takk fyrir mig! Inga Rut P.
jólagjöfin í ár!Inga Rut Pétursdóttir
já hún dóttir mín er með þetta allt alveg á hreinu - -hún vill fá lítinn bróðir í jólagjöf!
það er sko ekkert mál, ég fer bara í brúðkaup sem er svona búð eins og hagkaup nema hún selur börn..
og ef e´g vil hafa það fyrst í maganum þá get ég bara borðað barnamat.. þannig komast börnin í magann.. ætla reyndar bara að leyfa henni að halda það enn um sinn..
henni fannst ég ekki taka alveg nógu vel í þetta, með að vakna á nóttunni og skipta á bleijum og öllu því, en það var nú líka lítið mál, hún var sko alveg til í að vakna á nóttunni og hugga litla bróðir sinn.. svo getur hún lært að skipta um bleiju..
þessi elska!
þegar ég spurði hana hvort við þyrftum ekki pabba handa litla bróðurnum fannst henni ég vera að gera allt of mikið mál úr þessu...
þegar við fórum að sofa um kvöldið, var það síðasta sem hún hvíslaði að mér áður en hún lokaði augunum..
- mamma mig laaaangaaaar svvoooooo í lítinn bróðir -
svo tók hún sig til í nýja leikskólanum í morgun að segja þeim að núna væri hún bara að bíða eftir litla bróðir sínum....
æji greyjið sú verður vonsvikin þegar hún opnar pakkann frá mér á aðgangadag hjá pabba sínum og fær bara babyborn vagn og engann lítinn bróðir!